fimmtudagur, október 27, 2005

Játningin

Ég trúi á ESB, sjálft sambandið, skapara lágra vaxta og stöðugleika

Ég trúi á evruna, hennar einkadóttur, frelsara vorn, sem getin er af Evrópusamvinnu, fædd af Seðlabanka Evrópu, pínd á dögum hamfarakapítalisma, krossfest, en lifði það af, veiktist lítillega, reis á þriðja degi aftur upp úr kreppunni, steig upp á sinn stall, situr við hægri hönd ESB og mun þaðan áfram verja lifendur og ófædda.

Ég trúi á heilagan innri markað, heilagar almennar stofnanir, samfélag þjóðanna, fyrirgefningu syndanna, upprisu Íslands og mannsæmandi líf.

Verði aðildarviðræður.

Er lífið ekki dásamlegt?

1 Ummæli:

Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

Hagnaðinum er þökkuð hugmyndin af þessari færslu, skyldi einhver einhvern tímann rekast á hana.

Kveðja Bjarni Þór 19. apríl 2009.

19 apríl, 2009 06:22  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim