föstudagur, september 25, 2009

Hverjir ættu að hafa áhyggjur?

Hún var undarleg stemmningin á facebook þegar fréttir bárust af því að Davíð Oddsson hefði verið ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins. Fólk sem tjáði sig skiptist í þrjá hópa: þann minnsta sem þurfti að tjá sig sérstaklega um að þetta myndi ekki hafa nein áhrif á sitt líf, þann næsta fylltu sjálfstæðismenn sem vörðu ákvörðun eigendanna og jafnvel bar á jákvæðni og þann stærsta sem telur að Davíð eigi enga samleið lengur með samfélaginu og höfðu greinilega einhverjar áhyggjur af þessu. En hverjir ættu raunverulega að hafa áhyggjur?
Annars vegar, hvenær gerðist það síðast að Davíð Oddsson opnaði muninn eða framkvæmdi einhverja þá aðgerð sem reyndist hreinlega ekki stórskaðleg fyrir Sjálfstæðisflokkinn (og reyndar þjóðina oft í leiðinni) - getur einhver svarað því? Hvenær gerðist það svo síðast að þessi sami maður opnaði muninn eða framkvæmdi einhverja þá athöfn sem reyndist Sjálfstæðisflokknum vel? Svörin við báðum spurningum er að sennilega eru að verða 10 ár síðan að slíkt gerðist síðast. Hvers vegna í ósköpunum ætti einhver temmilega heilbrigður hægri maður að fagna þessari ákvörðun? Hvaða hægri maður vill sjá heiminn sinn brenna?
Hins vegar, hvers vegna ættu vinstri menn að hafa áhyggjur þegar ofangreint er skoðað? Auk þess er fátt betur til þess kosið í því að þjappa (stundum sundurlausri) stjórn saman en utanaðkomandi ,,óvinur" á borð við Davíð Oddsson. Þar fyrir utan (ef eitthvað er að marka ríkisstjórnina um að aðgerðir séu handan við hornið við setningu nýs þings) að þá beina þessi tíðindi í smátíma athyglinni frá vandræðum hennar og alla gagnrýni frá Morgunblaðinu er nú hægt að flokka sem áróður óðs manns í hefndarhugleiðingum.
Fyrir frjálslynt fólk er þetta auðvitað nokkuð slæm tíðindi, eiginlega alveg ferlega slæm. Sérstaklega fyrir þau okkar sem viljum sjá Sjálfstæðislokkinn taka mýkri, frjálslyndari og Evrópusinnaðri afstöðu

Er lífið ekki dásamlegt?

Efnisorð: ,

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

js.. nuna verdur enginn munur a fantikunum iheimsyn og mbl. hardlinumennirnir virdast rada ollu.

27 september, 2009 15:14  
Anonymous Nafnlaus sagði...

ciao, ivar

27 september, 2009 15:15  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim