sunnudagur, september 17, 2006

Aðferðafræðileg ástarsaga úr Odda (tileinkað Tómasi og baráttu okkar sumarið 2004)

Hvað er betra að kveldi dags
en kavíar og kampavín
við ilheitan arin og aðferðafræðiglósur
með T- og Z-gildin sín

Því aðferðafræðin hún minnir á þig
-ég man er hjá þér ég sat
við reiknuðum og ræddum um
Kendalltá, Öryggisbil og Kíkvaðrat

Ég man enn hve mjög þú táraðist
er af tölfræðingi var það tjáð
að hin fagurskapaða frumbreyta
væri þó forlögum háð

Þú raukst út í reiði með raðstig mælinga
og raðbreytuglósur í hönd
ég sá það ekki þá, en sé það nú
þetta voru aðeins tvö óháð sýndarsambönd

Tómas ég elska þig.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim