fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Leitað að atvinnumanni í handknattleik?

Nú þegar björgunarsveitin hefur hætt leit að þýsku ferðamönnunum, legg ég til að björgunarsveitin hefji leit að handknattleiksmanninum Bjarna Fritzsyni - en ekkert hefur frést af honum né fjölskyldunni síðan að þau yfirgáfu land þann 20.júlí og héldu á frönsku rivíeruna.
Ekki eru vinir hans sammála um hver ástæðan sé, sumir telja að hann sé orðinn of góður fyrir vini sína, aðrir telja að hann muni ekki hafa samband fyrr en hann er orðinn jafn brúnn og Jackson Richardson en fámennur hópur vill meina að hann sé ekki ennþá kominn í netsamband.
Vonandi gengur allt vel og ég mun segja frekari fréttir af þessu undarlega hvarfi þegar að einhverjar fregnir berast.


Er lífið annars ekki dásamlegt?

Efnisorð:

11 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég vill hrósa þér fyrir snögg vinnubrögð.

Vonandi að eitthverjar vísbendingar skjóti upp kollinum núna.

Þannig björgunarsveitin geti þrengt hringinn eitthvað.

Já það er kominn tími á hitting.. spurnig hvort við tökum okkur ekki tíma og horfum á Man Utd. núna um helgina (þú verrður bara að fara í ræktina á undan leiknum).

ást og friður,
Ívar

31 ágúst, 2007 00:06  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

Maður gerir sitt besta til að uppfylla þarfir lesenda.

Já horfum saman á leikinn - ég tek fyrri leikinn á brettinu.

Ástarkveðja Bjarni

31 ágúst, 2007 02:22  
Blogger Unknown sagði...

Ég er algjörlega sammála fyrri ræðumönnum!

Hvað hefur orðið um manninn og hans fjölskyldu?....hvað á það að fyrirstilla að vera að leita að þýskum ferðamönnum nú þegar þessi landsliðsmaður er týndur og tröllum gefinn?

Bara senda miðla og björgunarsveitina Tryggva á Selfossi í þetta.....traustir vinir sem geta gert kraftaverk!

31 ágúst, 2007 17:13  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

:)
Tryggvi: Ég var að spá í það hvort að við gætum haft átt þverfagleg Evrópu-samskipti - sem mundi mögulega felast í skiptidíl á upplýsingaflæði. Ég fæ númerið og e-mailið hjá Tómasi ef að þú ert til í það.

31 ágúst, 2007 22:25  
Blogger Unknown sagði...

það er nú í góðu lagi.....hafðu bara samband

02 september, 2007 17:29  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég hef hafið leit í Grikklandi. Kannsi að hann hafi brunnið hér? Er farinn út að leita

Kiddi B

02 september, 2007 19:16  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hafin er leit í Breiðholtinu, búið er að dreifa flyerum með myndum af týndu fjölskyldunni en lítið hefur komið upp úr því. En vitað er um 2 vinkonur Tinnu sem eru í næstu viku að fara í heimsókn til týndu fjölskyldunnar, þá mun koma í ljós hvort fjölskyldan sé búin að grafa sér holu sem þau búa í til að útiloka sig frá alheiminum..

Kveðja
Kristján

03 september, 2007 13:27  
Anonymous Nafnlaus sagði...

nú nú... tvær vinkonur Tinnu á leið í heimsókn, þetta eru rosa fréttir. En spurning hvort Tinna og Bjarni viti af komu þeirra þar sem þau hafa útilokað sig svona frá umheiminum?

kv,
Ívar

03 september, 2007 15:19  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

Ég þakka ánægjuleg og snögg viðbrögð allir saman.

Kristján: Geta þær ekki gert heimildarmynd úr för sinni?

Tryggvi: Ég verð í bandi.

03 september, 2007 17:04  
Anonymous Nafnlaus sagði...

eg var ad leita ad, takk

19 janúar, 2010 11:32  
Anonymous Nafnlaus sagði...

You could easily be making money online in the underground world of [URL=http://www.www.blackhatmoneymaker.com]blackhat backlinks[/URL], You are far from alone if you have no clue about blackhat marketing. Blackhat marketing uses little-known or misunderstood methods to generate an income online.

20 mars, 2010 18:12  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim