mánudagur, nóvember 12, 2007

Hversu margir svitadropar - hversu mörg skopp

10 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

loksins, ætlaði einmitt að fara heimta eitthvað alvöru old school greinilegt að great mind think alike. Legg til að það verði haldið innflutningsparty hjá þér um jólin þar sem eingöngu old school hardcore og hip hop verður spilað (allaveganna hluta úr kvöldi). Gæti orðið hressandi
kv bf

12 nóvember, 2007 15:38  
Anonymous Nafnlaus sagði...

hömm.. ég gæti haft smáááá athugasemd hvað það varðar.
kannski að við setjum upp græjur inni í geymslu fyrir ykkur bræður ;)

12 nóvember, 2007 16:12  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

BF: Eins og þú sérð, þá verður að nást samkomulag við þessa rokkóðu manneskju hér að ofan.
En mér lýst vel á þessa hugmynd - kannski að við göbbum þessar konur í einhvern raunveruleikaþáttahitting og þá geta svartir menn hittst á Laugarásvegi... og þegar ég segi svartir menn þá á ég ekki við mann eins og Tómas sem heldur með Utah og þegar að ég segi svartir menn þá á ég heldur ekki við menn sem hegða sér eins og skepnur, en einhver staðar þarna á milli - maður verður að vera góður granni.

12 nóvember, 2007 18:04  
Anonymous Nafnlaus sagði...

þú hefur nú einn og hálfan mánuð til þess að mýkja þessa elsku það ætti að nægja hehe kv bf

13 nóvember, 2007 07:21  
Anonymous Nafnlaus sagði...

haha.. já fyrst þið eruð svona ljúfir drengir þá samþykki ég kannski eitt, tvö lög :)
en eins og ég sagði við bjarna áðan, þá skiptir tónlistin mig ekki mestu máli í partýum; bara að það sé skemmtilegt fólk í kringum mig :)

13 nóvember, 2007 14:22  
Blogger Gummi Jóh sagði...

Hva ekkert mind in motion?

13 nóvember, 2007 15:56  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

Heyrðu uppáhalds Gummi minn. Ég þarf nú að ná samningum við þig varðandi það og fleiri hljómsveitir, einhvers staðar á lífsleiðinni hafa mínir diskar týnst - ræðum það næsta mánudag.

13 nóvember, 2007 17:02  
Anonymous Nafnlaus sagði...

yndislegt að heyra þetta... við þurfum bara að fá reykvélina lánaða niðrí Seljaskóla og þá ætti innflutningsparty-ið að verða perfect.

kv,
Ívar Tjörvi

13 nóvember, 2007 21:22  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

Held að menn séu aðeins að skrúfa þetta innflutningsboð of mikið upp. Þetta eru 83 fermetrar og hinir íhaldssömu íbúar Laugarnesvegar munu siga lögreglunni á mig ef að það verða einhver læti - þetta verður líka fjölskylduvænt innflutningsboð þar sem stórhluti þeirra sem boðið er, eru foreldrar.
Reykvél myndi sennilega gefa 90% viðstaddra reykeitrun í svo litlu rými og það er ekki hugguleg jólagjöf:)
Ég held reyndar hvort sem er að fólk vilji frekar afslappað kvöld svona rétt fyrir geðveiki jólanna.

Kveðja Bjarni.

14 nóvember, 2007 00:38  
Anonymous Nafnlaus sagði...

rétt skal vera rétt.. laugarásvegar, ekki laugarnesvegar :)

14 nóvember, 2007 13:07  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim