þriðjudagur, maí 20, 2008

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar og tímabilið í hljóðum


Það væri hægt að smella Popplagi Sigur Rósar hingað inn en þetta lag er ekki eins ofnotað. Ætla að melta þessar tilfinningar aðeins áður en ég skrifa nokkuð um þennan dramatíska leik.

Er lífið ekki dásamlegt?

Efnisorð: , , ,

5 Ummæli:

Blogger Biggie sagði...

Já þetta var helvíti góður leikur, amk langt fyrir ofan meðal skemmtanagildið sem hefur verið í vetur í CL. En núna verður United titlalaust næstu árin, Cristiano fer til Madrid og það er ekki hægt að kaupa annan 40+ marka mann fyrir neina upphæð.

Eins mikið og Terry fer í taugarnar á mér þá vorkenndi ég honum í lokin, 10cm á milli þess að hann hlaupi fagnandi í burtu og að hann leggist niður og fari að væla. En hann sýndi það að hann er winner með því að taka þetta svona nærri sér, respect. Chelsea keyptu Anelka á 15m til að láta hann taka þetta skelfilega víti enda sást það á honum alla leiðina að punktinum að hann var að fara að klikka.

22 maí, 2008 00:42  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

Já maður vorkennir Terry en þetta er samt eiginlega of fyndið. Þú veist að ég hata vítaspyrnukeppni en að fyrrverandi leikmaður Man City, Liverpool og Arsenal sem svo rann á peningarlyktina hjá Chelsea hafi klúðrað... tja ef að eitthvað var viðeigandi :)

22 maí, 2008 02:18  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

En varðandi Ronaldo þá sagði hann sjálfur eftir leik að hann yrði áfram hjá United... hvers vegna ætti hann svo sem að fara frá liði þar sem hann er kóngurinn og þar sem liðið er byggt í kringum hann, þar sem hann á náið samband við þjálfara sem elskar hann og hefur hjálpað honum í að þroskast og verða besti knattspyrnumaður í heimi, með góða vini sína frá Portúgal og Brasilíu með sér (og fleiri á leiðinni) í ungu liði sem var að vinna tvöfalt, annars vegar sterkustu og erfiðustu landskeppni í heiminum og svo Meistaradeild Evrópu.
Nei, hann getur farið þegar hann er rétt að skríða í þrítugt og er búinn að vinna ensku deildina og Meistaradeildina nokkrum sinnum í viðbót :)
Það er hins vegar spurning með Fabregas og Torres... hvenær þeir verða þreyttir á að vinna ekki neitt - þeim er velkomnið að ganga til liðs við Evrópumeistarana :)

Kveðja Bjarni Þór

22 maí, 2008 02:24  
Blogger Sólskinsfífl nútímans sagði...

... maður er ekki lengi að missa virðingu fyrir Terry of finnast þetta drullugott á hann.

Snýtir sér á Tevez eftir 8 sek í þessu myndbandi:

http://www.youtube.com/watch?v=dV2UrgzstGM&eurl=http://www.redcafe.net/f7/lets-all-laugh-terry-203704/index2.html

22 maí, 2008 03:37  
Anonymous Nafnlaus sagði...

farðu nú að skrifa um þennan leik...

kv,
ivar

22 maí, 2008 12:40  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim