miðvikudagur, júní 20, 2007

Hiphop klassík (upprifjun tvö)

Jæja aðeins meira til að ylja ykkur um hjartarætur.

Digable Planets - Where I'm From (remix) (upprunalega er nú samt betra)

Gang Starr-Take It Personal

Jeru The Damaja - Come Clean

Gil Scott Heron - The Revolution Will Not Be Televised

Camp Lo - Black Nostaljack

Blackmoon - How Many MC s (var einhver búinn að gleyma þessari snilldar hljómsveit?)

Black Moon I - Gotcha Opin

...endilega hendið inn linkum á ykkar gullmola.

Efnisorð: ,

föstudagur, júní 15, 2007

Hiphop klassík (upprifjun eitt)

Áður en að allar svölu gömlu hiphop hetjurnar selja sál sína eins og Doug E. Fresh og koma fram í American Idol eða einhverju verra - þá er rétt að benda á smá klassík:


Eric B. & Rakim - Paid In Full

RUN DMC - Mary, Mary

Geto Boys-My Mind Playing Tricks On Me (vel falinn demantur)

De la soul-Me,myself and I.

Wu... - C.R.E.A.M.

Wu Tang Clan - Can It Be All So Simple


Að lokum: Vonargeisli hjá Lakers? (ef að Lakers nær að losa sig við hrakfallabálkinn Odom og hinn getulausa Kwame fyrir Jermaine O'Neal þá væri það himneskt)

Efnisorð: ,

Óþægilegt aukaslag - klassík

Ég fékk sting í hjarta þegar ég frétti að eitthvað bandarískt Idol fífl hefði tekið hið ódauðlega hiphop lag ,,The Show" með Doug E. Fresh & the Get Fresh crew.
Við heyrum upprunalega slagarann.

Efnisorð:

sunnudagur, apríl 29, 2007

Klassík

Þetta yndislega lag er eitt fyrsta Hardcore lagið sem ég heyrði - verður kannski ekki minnst sem merkilegs framlags til tónlistarsögunnar, en sjaldan hafa menn svitnað jafn mikið. Kynslóðin sem fannst lítið varið í það að slamma, fann sig í trylltum dansi útrásar og gleði. Ég man að ég var staddur niðri í Seljaskóla þegar að ég heyrði þetta fyrst og þá var ekki aftur snúið í nokkur góð ár - plötuumslagið rifjar upp margar yndislegar minningar þessara bernskuára.
Pálmar, Ívar Tjörvi, Jörundur, Kjartan, Andri og þið allir hinir:

Hardcore will never die

Efnisorð: , , ,

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Gleðilegt sumar


Er farinn að þrífa bílinn!

Efnisorð:

þriðjudagur, mars 27, 2007

Flashback

Mér líður eins og það hafi verið í fyrradag sem ég lagði appelsínugulu gallabuxunum, rauðu Fila skónum og Lakers stuttermabolinum sem ég klæddist yfir einlitan síðerma bol - nýkominn heim löðrandi sveittur úr reykfylltri ljósageðveikinni í Seljaskóla, með súperdós í hendinni - ásamt fyrstu kynslóðinni sem dansaði yfir skífuskönkun DJ KGB.
Ég trúi því ekki að það séu liðin 15 ár síðan að lagið Trip to the moon var gefið út.

Efnisorð: