Róleg kvöldstund
Ég varði kvöldinu ásamt Andrési Jónssyni og Hauk Haukssyni í Hagnaðarsetrinu. Að venju var boðið upp á veglegar veitingar. Við ræddum fjölskyldumál, húsnæðismál, fyrirtækjamál og á einum tímapunkti var umræðan farin að snúast um heilbrigðismál, ekki það að ég hafi ekki notið kvöldsins með þessum yndislegu mönnum - en þetta sýnir hins vegar hvað Barca vs Liverpool var ógeðslega leiðinlegur leikur - jafnvel leiðinlegri en ég bjóst við. Um tíma var ég búinn að gleyma að þessi leikur væri í gangi, því hann minnti frekar á æfingarleik tveimur vikum fyrir mót en fyrri leika liða í 16-liða úrslitum CL. Ég er að spá í að leggja fram kæru gegn Barcelona FC og biðja þá um að endrgreiða mér þessar 90 leiðinlegu mínútur.
Púú á Liverpool
Púú á Barca!!!
Púú á Liverpool
Púú á Barca!!!
Efnisorð: Andlegt Klám, Feminismi, Heimska, Knattspyrnuleysi, Mannréttindabrot., Nauðgun, Neikvæðni, Rugl, Viðbjóður

